28. maí 2008 klukkan 22:29
Ja hérna hér... smá kaldhæðni í gangi.. miðað við síðasta blogg þá átti ég ekki von á að typpaumræðan mundi taka þessa stefnu.. en
...það er margt sem maður veit ekki.. sumt mundi maður líka hreinlega ekki vilja vita.. en stundum á maður ekki kost á öðru... í dag þegar ég var að lesa eyjafréttir.is, sem væri ekki frásögu færandi nema hvað... ég var að fletta í gegnum þetta ágætisblað þegar ég sá viðurnefni pabba míns í einni fyrirsögninni.. og viti menn, það er búið að gefa út bók með skýringum á viðurnefnum sem menn hafa hlotið í Eyjum... og þarna var einmitt skýringinn á viðurnefni pabba míns.. þið sem þekkið mig og mína vitið væntanlega hvað nafngiftið er.. ég hef aldrei skammast mín fyrir það sem pabbi minn er kallaður, því að viðurnefnið setur mig og systkinin mín í góðan "flokk".. þ.e.a.s gullisystkinin ;) ..Þetta er örugglega alveg ágætis bók og örugglega mörg skemmtileg viðurnefni þar á ferð.. en mér fannst hálf furðulegt að sjá þetta svona svart á hvítu.. og þar fyrir utan þá get ég ekki staðfest neitt um þessa útskýringu á viðurnefninu og satt best að segja þá kæri ég mig ekki um að vita það neitt nánar.. en það eru ekki margir sem geta státað sig af slíku viðurnefni sem hann faðir minn hefur hlotið... Gaman af því! ;) Sá lika að menn hafa reynt að gera betur en sá fékk aðeins silfrið.. hehehe..
Annars nenni ég ekki að blogga meira núna.. mikið að gera, ennþá meira búið að gerast og jafnvel ennþá meira eftir að gerast þannig að mér fallast hendur..
Kv. Thelma Gillagulltilladóttir ;)
Thelma Björk Gísladóttir
19. maí 2008 klukkan 23:53
Hér er saga einnar sem er nýlega orðin 43 ára:
Þegar ég var 16, vonaðist ég til að einhvern daginn myndi ég eignast kærasta. Þegar ég var orðin 18 eignaðist ég kærasta, en það var engin ástríða. Svo ég ákvað að finna mér ástríðufullan náunga með tilfinningu fyrir lífinu og tilverunni. Á háskólaárunum var ég með ástríðufullum strák, en hann var of tilfinningasamur. Allt var neyðarástand í hans augum. Hann grét stanslaust. Ég fann fljótlega að mig vantaði mann sem væri traustur og jarðbundinn. Og loks, þegar ég var orðin 25 hitti ég mjög jarðbundinn mann, en hann var leiðinlegur. Hann var algjörlega útreiknanlegur og varð aldrei spenntur yfir einu eða neinu. Lífið varð svo leiðinlegt að ég ákvað að reyna að finna mér mann sem að væri spennandi. Þegar ég var 28 fann ég mjög spennandi gaur, en ég gat engan veginn haldið í við hann. Hann rauk úr einu í annað og gat aldrei verið lengi á sama stað eða verið lengi með sömu áhugamálin. Hann framkvæmdi allt sem honum datt í hug, hvort sem það var hættulegt eða fífldjarft og daðraði við allt sem hreyfðist. Hann var skemmtilegur en áttavilltur. Þannig að ég ákvað að reyna að finna mann með metnað. Þegar ég var orðin 31 fann ég loksins gáfaðan mann með metnað. Hann var með fæturna á jörðinni og við giftum okkur. Hann var svo metnaðarfullur að hann skildi við mig, hirti allt sem ég átti og stakk af með bestu vinkonu minni. Núna er ég 43 og er að leita að kalli með stórt typpi.
Fékk þennan sendan frá Ásdísi og mátti til með að deila honum með ykkur hinum 
Thelma Björk Gísladóttir
11. maí 2008 klukkan 22:37
Hæ yndin mín
Ég má til með að skella inn nokkrum línum í dag.. síðustu dagar eru búnir að vera með eindæmum yndislegir (sem og reyndar síðustu vikur) og sumarið er svo sannarlega að gleðja mitt litla hjarta. Veðrið er búið að vera alveg frábært, sól og sumarylur sem sannarlega smita útfrá sér. Þó svo að það sé hrikalega mikið að gera í skólanum þá hefur það ekki eins mikil áhrif á geðheilsuna þegar veðrið er svona gott og skólafélagarnir svona skemmtilegir ;) Síðustu daga er ég búin að vera með "fiðrildi í maganum" og átti erfitt með að slá því föstu hverju/hverjum ég gæti kennt um.. en eftir smá umhugsun þá veit ég að ég hef fullt af ástæðum fyrir flögrandi fiðrildum. Wikipedia vill meina að ég sé ástsjúkur unglingur eða stressuð, en ef fiðrildi væru einu "verkirnir" sem maður fær útaf stressi þá væri ég alveg til í að vera stressuð oftar (ja well .. ef það væri hægt). Og þetta með ástsjúka unglinginn.. hehe ég er kannski ekki unglingur lengur.. en hver veit ;)
..Um helgina fórum við í grill á Kämnersvägen 11.. þar lenti Gauti í sundlaugapartýi og fjöri og bætti vel á bóndabrúnkuna. Hann lenti reyndar líka í sundlaugarpartýi á föstudaginn með leikskólafélögum sínum eftir leikskólann. Þegar ég kom að ná í hann heim til vinar síns þá var hann hjá nágrönnunum að sprellast með vinum sínum.. því miður var ég ekki með myndavélina því að þetta var alveg yndisleg sjón.. svo mikið frelsi og svo mikil gleði :) Í gær fékk ég að taka fyrsta viðtalið mitt.. fyrsta alvöru viðtalið.. og gekk það alveg bærilega..svo þegar ég kom til baka á "kjammann" þá fékk að hnoðast aðeins með Nóel litla sem er stærri í hvert skiptið sem ég sé hann enda er hann duglegur að drekka ;). Síðan borðuðum við hjá Rakel og Bjarka, Gauti mátti reyndar ekki vera mikið að því að borða enda mikið krakkafjör þarna uppfrá.. allir Íslendingarnir að hrúga niður börnum.. en já síðan hjóluðum við heim því að Katrín og Gummi voru á leiðinni til okkar í heimsókn, þá var mikið spjallað og hlegið og borðað aldeilis gott ávaxtasalat með vanilluvisp.
Í dag fórum við svo á ströndina.. já elskurnar við fórum á ströndina í Lomma og böðuðum og sóluðum okkur.. til allrar hamingju á Gréta vinkona bíl og því er hægt að taka svona skyndiákvarðanir og skella sér á ströndina þegar veðrið er gott :) Eftir mikið fjör og yndislegan dag á ströndinni þá grilluðum við heima hjá Katrínu og Gumma.. sátum á grasinu með lítið ferðagrill og héldum áfram að sóla okkur.
Svona núna.. eins og þið getið bara rétt ímyndað ykkur.. þá sit éghérna eins og nýstrekkt leður og pikkar á lyklaborðið mitt :) en ég hef allt sumarið á íslandi til að jafna mig og koma heim eins og silkiklútur ..hehehe ;)
Svo er mikið framundan.. Hildur vinkona er að koma til okkar á fimmtudaginn með fjölskylduna og ætla að vera hjá okkur yfir helgina. Mikið hlakkar okkur til :) Og síðan koma Andrea og Gísli Freyr helgina eftir það og þá heldur fjörið áfram og svo komum við heim helgina eftir það.. úúff tíminn á eftir að fljúga..
En jæja ætla að hætta að "monta" mig á því yndislega lífi sem ég lifi núna og kveðja í bili.. enda kominn tími til að fara uppí og lesa skólabækur..
Bless í bili sætustu sætu og takk fyrir öll kommentin ykkar 
Thelma Björk Gísladóttir
27. apríl 2008 klukkan 18:18
Yndisleg helgi senn á enda og ný skólavika með tilheyrandi verkefnum og heilabrotum tekur við.
Helgin var róleg og þægileg hérna á Studentlyckan. Eftir skóla á föstudaginn fórum við Gréta saman í bæinn í blíðunni, fengum okkur að borða á ítölskum veitingastað (og þar sem veðrið var svo gott þá sátum við að sjálfsögðu úti). Eftir það röltum við um bæinn og skoðuðum búðirnar..merkiegt hvað það er mikið að búðum sem maður hefur ekki gefið sér tíma til að skoða.. kannski af því að ég er oftast á einhverjum þeyting. Fljótlega var svo kominn tími til að ná í Gauta á Ulrikedals förskola. Hann var auðvitað ánægður yfir því að nú væri kominn helgi.. við tókum smá hjólatúr (alltaf verið að æfa sig) og enduðum í búðinni, keyptum helgarnammið og fórum heim að elda pasta ala Aníta. Um kvöldið komu svo Katrín og Gummi í heimsókn til okkar. Leyndarmál voru leyst og mikilvæg málefni rætt.
Síðan rann upp laugardagurinn með öllum sínum sólargeislum og ekki var hægt að hanga inni og læra.. svo að við mæðgin skeltum okkur í langan hjólatúr, komum við í Jättekul og Gauti fékk að kaupa sér smá fyrir peninginn sem amma Lilja gaf honum. Síðan hjóluðum við áfram og enduðum í heimsókn hjá Rakel, Bjarka og Nóel. Gauti fór beint út að leika við íslensku vini sína og við systur vorum inni í "dúkkuleik". Eftir matinn hjóluðum við aftur heim og Gauti, þessi elska, sofnaði á innan við 10 mínútum eftir að við komum inn um dyrnar.. alveg búið að tæma batteríin.
Dagurinn í dag byrjaði síðan rólega, framan af sat ég og pikkaði inní tölvuna og Gauti teiknaði, málaði og lék sér. En svo var bara ekki hægt að sitja inni lengur.. og hvað haldið þið að við höfum farið að gera??? Jebb við settumt á fákana góðu og riðum á vit ævintýranna.. neihh ekki alveg.. en við hjóluðum allavega í parkinn og Gauti lék sér í tækjunum þar meðan ég las góða bók um karlmennsku. Síðan var farið heim að grilla á hreinu fínu svölunum okkar (ekki nein könguló sem heldur okkur inni lengur ;)). Ég er reyndar ekki búin að koma því í verk að flytja grillið mitt yfir frá Rakel og family hingað á svalirnar en þá er ekkert annað að gera en að splæsa bara í eitt stykki einnota grill og vandamálið er leyst. Maturinn smakkaðist vel og nú sit ég hérna að uppfæra ykkur um okkar hagi og Gauti liggur í baðinu með kertljós og ljónin sín og hefur það notalegt. Á morgun ætlum við "kynjafræðingarnir" að taka langan vinnudag og enda á því að elda saman og hafa það gott.. Alltaf mikið fjör og skemmtilegt umræðuefni þegar við þrjár erum komnar saman og ræðum um ber brjóst þar til við erum orðnar bláar á vörunum.. ;) Þessi vika verður síðan fljót að líða þar sem við fáum 4 daga helgarfrí.. ekki amalegt :) Og þá erum við Gauti að hugsa um að skella okkur í tívolíið með Magga okkar í Köben. En meira um það seinna.
Og nú er sögustund á enda..
Ég er svo með spurningarlista (um kvennmannsbrjóst og fleira) sem ég væri til í að leggja fyrir ykkur flest... þetta er hluti af verkefni sem við stöllur í kynjafræðinni erum að vinna við um þessar mundir :) please hafið samband ef ég er ekki búin að senda ykkur mail ;) The more the marrier ;)
Gangið svo hægt um gleðinnar dyr.. því ekki kann ég það.. Íris og Gréta geta staðfest það :)
Hejdå allihopa
Thelma og Gauti hjólagarpar
Thelma Björk Gísladóttir
24. apríl 2008 klukkan 09:28
This is my now...
Ég ætla ekki að eyða mörgum mínútum í þessa færslu enda að keppast við að skrifa ritgerð svo að ég geti farið út í sólina að læra með vinkonunum. Hér í Lundi er svo sannarlega komið sumar, sólin skín og vindurinn farinn í verkfall. Eftir frekar "brösulega" ársbyrjun er ég orðin svolítið guggin og grá og þá jafnast ekkert á við sólageisla sem teygja sig inn um gluggann minn og kyssa mig á kinnina á meðan ég velti félagsfræðilegum viðfangsefnum fyrir mér.
Ég ætla ekki að eyða mörgum orðum í það sem ég hef verið að gera síðan ég tók þátt í bloggheiminum síðast heldur einbeita mér af því að komu nútímanum til skila og leyfa þeim sem nenna að flygjast með mér og mínum... allt til gamans gert að sjáfsögðu :)
Það sem er einna helst að frétta héðan úr Lundi er að Rakel syss og Bjarki voru að eignast einstaklega fallegan son sem þau eru búin að nefna Nóel, virkilega fallegt nafn. Prinsinn minn er mjög ánægður með litla frænda (kallar hann bróðir sinn, sem hann gerir líka við Gísla Frey hennar Andreu syss) og hefur mikið verið að pæla í því hvaðan börnin koma og hvar þau hafa haldið sig áður en þau fórum í magann á mömmu sinni.. já sem betur fer var mamma/amma Lilja hérna til að aðstoða við þetta málefni. Var ekki alveg búin að setja mig í stellingarnar til að tala um the bees and the birds ;) Hann er ægilega mikill pælari (eins og mamma sín) og oft getur verið erfitt að svara spurningum hans en ég reyni að segja honum heila sannleikan, stundum fallega pökkuðum inn en sannleikurinn skal það vera :) Já Gauti minn heldur mér á tánum, nú er hann farinn að hjóla með mér útum allt (engin hjálparadekk, þökk sé ömmu) og þess á milli æfir hann sig á hjólabrettinu sem amma Lilja gaf honum. Það var mjög erfitt að sjá eftir mömmu/ömmu heim aftur, þessar tvær vikur voru of fljótar að líða. Gauti felldi nokkur tár í lestinni og sagði: "ég elska ömmu mína, þess vegna vil ég alltaf vera hjá henni".. saug svo uppí nefið og bætti við: "en bráðum förum við til Íslands og þá get ég knúsað hana aftur". Um kvöldið þegar við vorum að horfa á Liverpool spila á móti Chelsea.. sem verður ekki rætt nánar í þessari færlsu..nema þegar leikurinn var flautaður af þá sagði prinsinn: "oohhh týbískt.. nú á afi Gísli eftir að vera leiður en gott að amma er farin heim til hans" :) Yndislegir gullmolar !
Svo er það næst á dagskrá að klára þennan stóra kúrs sem ég er í núna með stæl með tilheyrandi berbrjósta umræðum og pælingum.. og jafnvel kannski vettvangskönnun :) Og svo þarf auðvitað að skila þessum ritgerðum sem ég er að koma mér í að klára. Síðustu vikur hef ég verið að ströggla við "verk-kvíða" (alltaf gott að sjúkdómsvæða leti) og þar af leiðandi hafa verkefnin hlaðist upp.. en ekki lengur takk fyrir, nú er allt komið á fullan snúning svo að ég geti farið heim til Eyja létt eins og fuglinn fljúgandi (vonandi í orðsins fyllstu merkingu ;)) En nú eru fimm vikur þangað til við mæðgin förum "heim" og eyðum sumrinu í faðmi fjölkyldu og vina, mikil tilhlökkun þar á ferð get ég sagt ykkur. En fyrst ætla Andrea syss og Gísli Freyr að kíkja í heimsókn til okkar. Engin orð nógu sterk til að útskýra gleði mína yfir því.
En jæja þetta gengur ekki lengur.. Foucault og Constructionism here I come! ;)
Njótið lífsins.. allavega ætla ég að gera það 
kv. Thelma Björk
Thelma Björk Gísladóttir