Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Atburðarteljari

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Thelma Björk Gísladóttir
  • Netfang: thelmagisla@hotmail.com
  • Staður: Lund í Svíþjóð
  • Símanúmer: 0046739675076
  • Atvinna: Félags- og kynjafræðingur sem er í Mastersnámi við Lund's University
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð með sjálfri mér ;) og á einn yndislegan son sem gefur lífinu lit :)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn

Lífið er yndislegt...

11. maí 2008 klukkan 22:37
Hæ yndin mín Svalur
Ég má til með að skella inn nokkrum línum í dag.. síðustu dagar eru búnir að vera með eindæmum yndislegir (sem og reyndar síðustu vikur) og sumarið er svo sannarlega að gleðja mitt litla hjarta. Veðrið er búið að vera alveg frábært, sól og sumarylur sem sannarlega smita útfrá sér. Þó svo að það sé hrikalega mikið að gera í skólanum þá hefur það ekki eins mikil áhrif á geðheilsuna þegar veðrið er svona gott og skólafélagarnir svona skemmtilegir ;) Síðustu daga er ég búin að vera með "fiðrildi í maganum" og átti erfitt með að slá því föstu hverju/hverjum ég gæti kennt um.. en eftir smá umhugsun þá veit ég að ég hef fullt af ástæðum fyrir flögrandi fiðrildum. Wikipedia vill meina að ég sé ástsjúkur unglingur eða stressuð, en ef fiðrildi væru einu "verkirnir" sem maður fær útaf stressi þá væri ég alveg til í að vera stressuð oftar (ja well .. ef það væri hægt). Og þetta með ástsjúka unglinginn.. hehe ég er kannski ekki unglingur lengur.. en hver veit ;)
..Um helgina fórum við í grill á Kämnersvägen 11.. þar lenti Gauti í sundlaugapartýi og fjöri og bætti vel á bóndabrúnkuna. Hann lenti reyndar líka í sundlaugarpartýi á föstudaginn með leikskólafélögum sínum eftir leikskólann. Þegar ég kom að ná í hann heim til vinar síns þá var hann hjá nágrönnunum að sprellast með vinum sínum.. því miður var ég ekki með myndavélina því að þetta var alveg yndisleg sjón.. svo mikið frelsi og svo mikil gleði :) Í gær fékk ég að taka fyrsta viðtalið mitt.. fyrsta alvöru viðtalið.. og gekk það alveg bærilega..svo þegar ég kom til baka á "kjammann" þá fékk að hnoðast aðeins með Nóel litla sem er stærri í hvert skiptið sem ég sé hann enda er hann duglegur að drekka ;). Síðan borðuðum við hjá Rakel og Bjarka, Gauti mátti reyndar ekki vera mikið að því að borða enda mikið krakkafjör þarna uppfrá.. allir Íslendingarnir að hrúga niður börnum.. en já síðan hjóluðum við heim því að Katrín og Gummi voru á leiðinni til okkar í heimsókn, þá var mikið spjallað og hlegið og borðað aldeilis gott ávaxtasalat með vanilluvisp.
Í dag fórum við svo á ströndina.. já elskurnar við fórum á ströndina í Lomma og böðuðum og sóluðum okkur.. til allrar hamingju á Gréta vinkona bíl og því er hægt að taka svona skyndiákvarðanir og skella sér á ströndina þegar veðrið er gott :) Eftir mikið fjör og yndislegan dag á ströndinni þá grilluðum við heima hjá Katrínu og Gumma.. sátum á grasinu með lítið ferðagrill og héldum áfram að sóla okkur.
Svona núna.. eins og þið getið bara rétt ímyndað ykkur.. þá sit éghérna eins og nýstrekkt leður og pikkar á lyklaborðið mitt :) en ég hef allt sumarið á íslandi til að jafna mig og koma heim eins og silkiklútur ..hehehe ;)

Svo er mikið framundan.. Hildur vinkona er að koma til okkar á fimmtudaginn með fjölskylduna og ætla að vera hjá okkur yfir helgina. Mikið hlakkar okkur til :) Og síðan koma Andrea og Gísli Freyr helgina eftir það og þá heldur fjörið áfram og svo komum við heim helgina eftir það.. úúff tíminn á eftir að fljúga..

En jæja ætla að hætta að "monta" mig á því yndislega lífi sem ég lifi núna og kveðja í bili.. enda kominn tími til að fara uppí og lesa skólabækur..

Bless í bili sætustu sætu og takk fyrir öll kommentin ykkar Koss

Thelma Björk Gísladóttir
Á meðan ég man! Maður getur sótt um E kort á netinu: http://www.forsakringskassan.se/privatpers/
14. maí 2008 klukkan 14:15
Thelma Björk GísladóttirTakk fyrir það sæta :* Er búin að sækja um kortið fyrir okkur mæðginin :)
14. maí 2008 klukkan 19:23
Asta pasta
 
hæ hó jibbí jey og jibbí jey það er komin thelmu og gautadagur..eee eftir 5 daga..júhú..
sí jú sún sætu:)
hringdu áður en þú kemur svo ég viti allt...allt..allt...
jæja orðin geggjuð...
lagast þegar þú kemur sæta..
kv Ásta
næstum eins og ástsjúkur unglingur:)
25. maí 2008 klukkan 23:42

Skrifa athugasemd